Nokia C1 01 - Neyðarhringingar

background image

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Ef tækið

styður símtöl á internetinu (netsímtöl) skaltu bæði kveikja á farsímanum og á netsímtölum. Tækið getur reynt að koma á

neyðarsímtölum í farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala ef bæði eru virk. Ekki er hægt að tryggja tengingu við allar

aðstæður. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

Neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir einnig þurft að

ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu þínu:

Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.

Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur valið í tækinu þínu.

Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða flugsniði í virkt snið.

2

Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3

Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4

Styddu á hringitakkann.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið getur verið

eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.