
SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
SIM-kortið og innihald þess getur hæglega orðið fyrir skemmdum ef það er rispað eða
beygt svo fara skal varlega þegar það er meðhöndlað, sett inn og tekið út.
Mikilvægt: Ekki skal nota mini-UICC SIM-kort, einnig þekkt sem micro-SIM-kort,
micro-SIM-kort með millistykki eða SIM-kort með mini-UICC straumloka (sjá mynd) í
þessu tæki. Micro SIM-kort er minna en venjulegt SIM-kort. Þetta tæki styður ekki notkun
micro SIM-korta og ef ósamhæf SIM-kort eru notuð getur það valdið skemmdum á
minniskortinu eða tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu geta skemmst.
1 Settu fingurinn í dældina neðst á tækinu og taktu bakhliðina varlega af (1).
2 Ef rafhlaðan er í tækinu skaltu fjarlægja hana (2).
3 Settu SIM-kortið á sinn stað. Gættu þess að snertiflötur kortsins snúi niður (3, 4).
4 Gættu þess að rafskaut rafhlöðunnar nemi við tengi rafhlöðuhólfsins og settu
rafhlöðuna á sinn stað (5). Til að setja bakhliðina aftur á tækið skaltu beina efstu
læsihökunum að raufunum (6), og ýta henni niður þar til hún smellur á sinn stað
(7).
Þjónusta
5

Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en
rafhlaðan er fjarlægð.